Persónuverndarstefna Contour-forritsins,
ENDURSK. 1.2
| Efnisyfirlit | ii
Efnisyfirlit
Persónuverndarstefna Contour Diabetes-forritsins ................................................ 4
Inngangur ..................................................................................................................... 4
Að nota Contour-forritið ............................................................................................ 4
Að stofna Contour Cloud-reikning ............................................................................ 4
Stjórn á sykursýki ....................................................................................................... 5
Veiting og söfnun persónuupplýsinga ....................................................................... 5
Ástæður fyrir úrvinnslu persónuupplýsinga ............................................................ 6
Markaðssetning ........................................................................................................... 7
Deiling persónuupplýsinga ......................................................................................... 8
Að nota Contour-forritið til að senda skýrslur ........................................................ 8
Mín mynstur ................................................................................................................ 9
Tengingar við forrit þriðju aðila ................................................................................ 9
Varðveisla og flutningur persónuupplýsinga ........................................................... 9
Öryggi persónuupplýsinga ....................................................................................... 10
Vafrakökur og svipuð tækni .................................................................................... 10
Notkun á vafrakökum .......................................................................................................................................... 10
Svona notum við þessa tækni ............................................................................................................................... 11
Valkostir sem standa þér til boða ......................................................................................................................... 11
Ekki rekja ............................................................................................................................................................. 11
| Efnisyfirlit | iii
Gagnageymsla ............................................................................................................ 11
Að eyða Contour Cloud-reikningi ........................................................................... 11
Að nýta réttindi þín ................................................................................................... 12
Börn ............................................................................................................................ 13
Breytingar á persónuverndarstefnunni .................................................................. 14
Hafa samband ............................................................................................................ 14
| Persónuverndarstefna Contour Diabetes-forritsins | 4
Persónuverndarstefna Contour Diabetes-forritsins
Gildistökudagur: apríl 2024, ENDURSK. 1.2
Inngangur
Við vitum að þér er annt um persónuupplýsingar þínar og hvernig þær eru notaðar og við viljum að þú getir treyst því
að Ascensia noti persónuupplýsingar þínar af gætni. Þessi persónuverndarstefna hjálpar þér að skilja hvaða
persónuupplýsingum við söfnum, hvers vegna og hvað við gerum við þær. Þessi persónuverndarstefna, ásamt
notandaleyfissamningnum (EULA), á við um notkun þína á
Contour Diabetes-forritinu.
Contour Diabetes-forritið er starfrækt af Ascensia Diabetes Care Holdings AG („Ascensia“, „við“ eða „okkur“),
með höfuðstöðvar við Peter Merian-Strasse 90, 4052 Basel, Sviss. Ascensia ber ábyrgð á persónuupplýsingunum
sem unnið er úr í Contour Diabetes-forritinu.
Contour Diabetes-forritið er örugg skýjaþjónusta sem er hluti af vörulínu Ascensia Diabetes Care sem auðveldar
einstaklingum með sykursýki að hafa stjórn á henni. Contour Diabetes-forritið virkar með Ascensia-blóðsykursmælum
(snúrutengdum mælum), tækjum sem virka með Bluetooth (þráðlausum BLE-tengdum mælum) og öðrum vörum sem
tekið er fram að virki með Contour Diabetes-forritinu.
Íbúar á evrópska efnahagssvæðinu, Bretlandi og Sviss: Ascensia reiðir sig á lagalegt samþykki fyrir úrvinnslu
heilsutengdra upplýsinga í því skyni að veita þér aðgang að Contour Diabetes-forritinu og Contour Cloud-
reikningnum. Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er með því að velja „Eyða reikningi“ í Contour-forritinu.
Vinsamlegast lesið persónuverndarstefnuna áður en stofnun Contour Cloud-reiknings er samþykkt.
Að nota Contour-forritið
Nauðsynlegt er að stofna Contour Cloud-reikning til að geta notað Contour-forritið. Þegar þú stofnar reikning verður
þú beðin(n) um að velja land og tungumál svo við getum veitt þér rétta útgáfu af persónuverndarstefnunni og
notandaleyfissamningnum. Þú verður einnig beðin(n) um að samþykkja ákvæði og skilmála samningsins áður en þú
getur notað Contour-forritið.
Að stofna Contour Cloud-reikning
Þegar þú hefur lokið skráningu fyrir Contour Cloud-reikningi verður öryggisafrit af persónuupplýsingunum vistað í
skýinu. Þú getur nálgast gögn sem eru vistuð á Contour Cloud-reikningnum í mörgum tækjum, þ.m.t.
blóðsykursmælingar. Þegar þú stofnar Contour Cloud-reikning gerir það Contour-mælinum sem þú parar við Contour-
forritið kleift að samstilla upplýsingar og stillingar, s.s. marksvið.
Þegar þú stofnar Contour Cloud-reikning verður þú beðin(n) um að samþykkja úrvinnslu heilsutengdra upplýsinga eins
og fram kemur í þessari persónuverndarstefnu. Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er með því að eyða
reikningnum þínum (sjá „Að ea Contour Cloud-reikningi“ hér að neðan). Ekki stofna Contour Cloud-reikning ef þú
vilt ekki að við vinnum úr heilsutengdum upplýsingum.
| Stjórn á sykursýki | 5
Stjórn á sykursýki
Contour-forritinu og Contour Cloud-þjónustu er ætlað að aðstoða þig við að hafa stjórn á sykursýkinni með því
samstilla og skrá blóðsykursmagn sjálfkrafa svo þú getir fylgst með því hvernig athafnir þínar hafa áhrif á
blóðsykurinn. Contour-forritið og Contour Cloud-reikningurinn krefjast þráðlauss nets og/eða gagnatengingar til að
samstilla og sækja upplýsingar um blóðsykursmagn í snjallsíma. Contour-forritið og Contour Cloud-þjónusta
auðvelda þér að hafa stjórn á sykursýkinni en þjónustan kemur ekki í stað ráðlegginga læknis. Ascensia mælir með að
þú leitir reglulega ráðlegginga hjá lækni varðandi sykursýkina. Ascensia veitir notendum ekki læknisfræðilegar
ráðleggingar. Við mælum með að þú hafir samband við lækninn þinn eða næstu neyðarþjónustu ef þig grunar að um
neyðartilvik sé að ræða. Starfsfólki þjónustuversins er ekki heimilt að veita læknisfræðilegar ráðleggingar varðandi
efni, merkingu eða hugsanlegar afleiðingar blóðsykursmagns sem hlaðið er upp í Contour-forritið eða á Contour
Cloud-reikninginn.
Veiting og söfnun persónuupplýsinga
Ascensia vinnur úr persónuupplýsingunum þínum þegar þú veitir þær með eftirfarandi hætti:
Skráningarupplýsingar Contour Cloud-reiknings og prófílupplýsingar: Þegar þú stofnar Contour Cloud-
reikning verða eftirfarandi upplýsingar vistaðar: nafn, kyn, netfang, fæðingardagur, land, sannvottunarupplýsingar
og aðrar skráningarupplýsingar, þ.m.t. aðgangsorðið að Contour Cloud-reikningnum þínum. Ef notandi er undir
galdri biðjum við um netfang foreldris/forráðamanns til sannvottunar. Hægt er að nota Contour-forritið til að
skrá upplýsingar um stjórn á sykursýki, heilsufarsástand og tengda Contour-mælinn. Þetta kann að fela í sér
upplýsingar á borð við tegund sykursýki, lyf, insúlín, máltíðir og reglubundna hreyfingu, heimilisfang sjúkrahúss
og læknistíma, skýrslur frá heilbrigðisstarfsfólki, blóðsykursmælingar, A1c-gögn og tegundarnúmer, raðnúmer og
stillingar mælis.
Aðgangur að kerfisþjónustu í fartæki: Byggt á stýrikerfi fartækisins kann Contour-forritið að hafa sjálfgefinn
aðgang að, eða þú verið beðin(n) um að veita aðgang að, ákveðinni kerfisþjónustu í tæki þínu, s.s. myndavél,
myndum og lista yfir tengiliði. Aðgangur að þessari kerfisþjónustu gerir Contour-forritinu kleift að virka sem
skyldi og leiðir ekki til þess að Ascensia hafi aðgang að, safni eða geymi neinar upplýsingar úr slíkri
kerfisþjónustu. Þú getur stjórnað aðgangi Contour-forritsins að kerfisþjónustu í stillingum fartækisins / Contour-
forritsins.
Neyðartengiliður: Þú getur valið að skrá upplýsingar um neyðartengilið sem þú vilt að verði haft samband við
í neyðartilviki. Upplýsingarnar um neyðartengilið eru aðeins vistaðar í snjallsímanum þínum og við söfnum
þeim hvorki né vistum þær á Contour Cloud-reikningnum.
Þjónustuver: Við skráum öll samskipti við þjónustuverið okkar ef þú hefur samband vegna Contour-forritsins,
Contour Cloud-reikningsins eða af öðrum ástæðum sem tengjast þjónustu við viðskiptavini. Þú kannt að veita
okkur persónuupplýsingar þegar þú fyllir út eyðublöð sem berast í tölvupósti þegar þú pantar vörur eða þjónustu,
sendir inn fyrirspurnir eða beiðnir, tilkynnir vandamál varðandi Contour-forritið eða við svipaðar aðstæður þar
sem þú velur að veita okkur upplýsingar.
Upplýsingar um tæki og notkun: Þegar þú notar Contour-forritið fáum við sjálfkrafa aðgang að tæknilegum
upplýsingum, þ.m.t. um gerð fartækisins sem þú notar, einkvæmt auðkenni (t.d. IMEI-númer, MAC-vistfang fyrir
þráðlaust netviðmót eða farsímanúmer), upplýsingar um farsímakerfi, stýrikerfi og hugbúnaðarútgáfu, IP-tölu,
tegund vefvafrans sem þú notar, land, tungumál og tímabelti. Við söfnum einnig upplýsingum um notkun þína í
Contour-forritinu, t.d. mælisvillur, skráningarfærslur og lyfjagjöf svo við getum tryggt að Contour-forritið virki
sem skyldi.
Vafrakökur og svipuð tækni: Við notum hugsanlega vafrakökur og svipaða tækni til að safna upplýsingum um
samskipti þín við ákveðna þjónustu sem er gerð aðgengileg í Contour-forritinu, sem og önnur vefsvæði og forrit.
Sjá kaflann „Vafrakökur og svipuð tækni“ hér að neðan til að fá frekari upplýsingar um tæknina sem við notum,
hvers vegna við notum hana og þá valkosti sem standa þér til boða.
| Ástæður fyrir úrvinnslu persónuupplýsinga | 6
Staðsetningarupplýsingar: Ef þú samþykkir og kveikir á staðsetningarþjónustu við skráningu fyrir Contour-
forritið söfnum við upplýsingum um nákvæma eða áætlaða staðsetningu þína út frá upplýsingum úr fartækinu
þínu. Við biðjum um samþykki þitt fyrir þessari upplýsingasöfnun í skráningarferlinu fyrir forritið. Þú getur
afturkallað samþykki þitt fyrir söfnun staðsetningarupplýsinga hvenær sem er með því að slökkva á
staðsetningarþjónustunni í stillingum tækisins. Ef þú virkjar notkun staðsetningarupplýsinga í stillingum tækisins,
en ekki í stillingum Contour-forritsins, er hugsanlegt að Ascensia safni upplýsingunum þrátt fyrir að þú sért ekki
að nota Contour-forritið. Við notum þessar upplýsingar til að bæta vörur okkar og þjónustu, þ.m.t. til að greina
útbreiðslu Ascensia-mæla. Ef þú ert undir lögaldri biðjum við um samþykki foreldris/forráðamanns fyrir söfnun
staðsetningarupplýsinga, líkt og fram kemur í kaflanum „Börn“ hér að neðan.
iOS-notendur: Þegar þú veitir Ascensia aðgang að heilsuforriti Apple Inc. („Apple“) í tæki þínu, þ.m.t. aðgang
að „HealthKit“, gagnagrunni Apple-heilsuforritsins, deilum við persónuupplýsingunum og heilsugögnunum
þínum, í þeim tilgangi að bæta og/eða staðfesta gögnin sem unnið er úr í Contour-forritinu. Magn
persónuupplýsinga og heilsugagna sem er deilt er breytilegt eftir því hvað þú velur. Ascensia mun hvorki nota né
birta þriðju aðilum notendagögn sem er safnað úr HealthKit í auglýsingaskyni, né í gagnasöfnunararskyni öðru en
að bæta heilsu. Sjá kaflann „Tengingar við forrit þriðju aðila“ fyrir frekari upplýsingar.
Gervigreind: Sem hluta af þjónustu okkar, og þar sem við á, kunnum við að nota gervigreind, svo sem vélnám
fyrir sjálfvirkar greiningar, meðal annars til að hjálpa þjónustuverinu að svara fyrirspurnum hraðar
.
Ástæður fyrir úrvinnslu persónuupplýsinga
Við vinnum úr persónuupplýsingunum þínum, þ.m.t. heilsutengdum upplýsingum, á eftirfarandi hátt:
með þínu samþykki, í því skyni að veita þér aðgang að Contour-forritinu, tengdri þjónustu og eiginleikum og til
að tilkynna þér um breytingar
til að gera þér kleift að senda skýrslur um blóðsykur, líkt og fram kemur í kaflanum „Að nota Contour-
forritið til að senda skýrslur“ hér að neðan
til að tengjast öðrum forritum þegar það býðst, líkt og fram kemur í kaflanum „Tengingar við forrit þriðju aðila
hér að neðan
til að fá upplýsingar um hvar Contour-forritið og mælar okkar eru notaðir til að bæta vörur okkar og
þjónustu, þ.m.t. í tengslum við áætlun okkar um staðsetningu á mælum
til að veita þér upplýsingar um blóðsykursmælingarnar þínar til að hjálpa þér að skilja mynstur og þróun
sykursýkinnar þannig að þú getir haft betri stjórn á henni, þ.e. tilkynningar um „Mín mynstur“ og tengda
virkni og stillingar
til að gera þér kleift að taka þátt í gagnvirkum eiginleikum Contour-forritsins, þegar þú kýst að gera þ
til að veita þér aðgang að skýjaþjónustu ef þú kýst að setja upp Contour Cloud-reikning
til að bregðast við öllum hugsanlegum beiðnum frá þér, t.d. beiðnum um aðstoð með Contour-forritið
eða Contour Cloud-reikninginn
til að gera foreldrum eða forráðamönnum kleift að stofna Contour Cloud-reikning fyrir barn, sem og stjórna
notkun þess á Contour Cloud-reikningnum.
til að stuðla að lýðheilsu í tengslum við lækningatæki, framkvæma rannsóknir og í tölfræðilegum tilgangi í ljósi
lögmætra viðskiptahagsmuna til að:
halda áfram að þróa, prófa og bæta Contour-forritið og Contour Cloud-þjónustu, þ.m.t. til að bjóða upp á
nýja virkni og eiginleika
skilja betur hvernig þú notar Contour-forritið, þ.m.t. virkni þess og eiginleika, sem og að tryggja að
innihald þess sé sett fram á sem skilvirkastan máta
auðvelda okkur að lagfæra vandamál sem koma upp í Contour-forritinu eða Contour Cloud-þjónustunni,
þ.m.t. varðandi svör við fyrirspurnum, viðbrögð við beiðnum um aðstoð, viðhald, úrræðaleit eða önnur
vandamál tengd notkun
framkvæma gagnagreiningu, prófanir og rannsóknir, þ.m.t. í tölfræðilegum tilgangi
þróa og innleiða öryggisverkfæri og ferla sem hluta af viðleitni okkar til að gæta að öryggi Contour-forritsins
senda öryggistilkynningar eða framkvæma aðgerðir til úrbóta á Contour-forritinu, mælum eða Contour Cloud-
reikningnum þínum þegar þess er þörf.
í ljósi lögmætra viðskiptahagsmuna í tengslum við beina markaðssetningu og, þegar nauðsyn krefur, samþykki fyrir
að:
| Markaðssetning | 7
bjóða þér að taka þátt í könnunum, viðhorfshópum eða öðrum kynningar- eða markaðstengdum aðgerðum í
tengslum við notkun þína á Contour-forritinu, Contour Cloud-reikningnum eða vörum okkar og þjónustu,
þ.m.t. í tengslum við valda þriðju aðila
mæla og skilja árangur auglýsinga sem við kunnum að birta og til að birta viðeigandi auglýsingar
veita tillögur að vörum eða þjónustu sem þú gætir haft áhuga á, þ.m.t. til að fá slíkar upplýsingar frá útibúi
Ascensia á þínu svæði, líkt og fram kemur í kaflanum „Markaðssetning“ hér að neðan.
Þar sem þess er krafist samkvæmt lögum, þ.m.t. lagalegum kröfum um öryggi lækningatækja.
Í ljósi almannahagsmuna á sviði lýðheilsu í tengslum við lækningatæki, til að framkvæma vísindalegar rannsóknir
og/eða í ljósi lögmætra viðskiptahagsmuna okkar, kann Ascensia að nota, greina og senda tölfræðilegar, samanteknar,
nafnlausar eða ópersónugreinanlegar upplýsingar (þ.e. upplýsingar sem Ascensia getur ekki rekið til þín og ekki er
hægt að nota til að bera kennsl á þig) til: samstarfsaðila Ascensia á þínu svæði, utanaðkomandi rannsóknaraðila eða
opinberra eða lögbærra yfirvalda sem hafa yfirumsjón með lækningatækjum og/eða landsyfirvöldum sem bera ábyrgð
á endurgreiðslur eða styrkveitingar vegna sjúkrakostnaðar. Við gerum þetta til að:
meta og bæta árangur aðferða, meðferða og kostnaðar við stjórnun á sykursýki,
rannsaka og meta hvernig þjónusta Contour-forritsins og Contour Cloud-reikninga er veitt og notuð, þ.m.t. í
tengslum við markaðsáætlanir,
meta árangur, áhrif og reynslu notenda af Contour-forritinu og Contour Cloud-reikningum (þ.m.t. á
grundvelli lýðfræðilegra upplýsinga frá notendum, t.d. landfræðilegum staðsetningum),
meta árangur og viðmót Contour-forritsins við blóðsykursmælingar,
bæta virkni og eiginleika Contour-forritsins og Contour Cloud-reikninga,
prófa og sannvotta uppfærslur og úrbætur á Contour-forritinu, þ.m.t. í tengslum við lækningatæki okkar, t.d.
blóðsykursmæla og -strimla,
fyrir rekstrar- og viðskiptaáætlanir Ascensia til rannsókna og þróunar, dreifingar og skilvirkni
viðskiptaaðgerða, og
fyrir vísindalegar rannsóknir, í tölfræðilegum tilgangi og til greininga í tengslum við sykursýki, þ.m.t. til að
birta vísindagreinar í læknisfræðilegum og/eða ritrýndum útgáfu- og tímaritum.
Í ljósi almannahagsmuna á sviði lýðheilsu í tengslum við lækningatæki, til að framkvæma vísindalegar rannsóknir
og/eða í ljósi lögmætra viðskiptahagsmuna okkar, kann Ascensia einnig að safna og nota tæknilegar upplýsingar um
snjallsímann þinn, fartæki og nettengdan eða þráðlausan hugbúnað, vélbúnað og jaðarbúnað, til að bæta vörur okkar og
þjónustu og veita þér aðgang að ýmsum eiginleikum Contour-forritsins.
MEÐ ÞVÍ AÐ STOFNA CONTOUR CLOUD-REIKNING SAMÞYKKIRÐU ÚRVINNSLU VIÐKVÆMRA,
HEILSUTENGDRA UPPLÝSINGA LÍKT OG FRAM KEMUR Í PERSÓNUVERNDARSTEFNUNNI.
Markaðssetning
Við gætum haft samband við þig til að upplýsa þig um vörur og þjónustu sem við teljum að þú hafir áhuga á eða eru
svipaðar þeim sem þú hefur þegar keypt eða spurt um. Útibú Ascensia á þínu svæði, dreifingaraðili Ascensia eða
valinn samstarfsaðili okkar gæti einnig haft samband við þig ef þú hefur samþykkt að fá slík samskipti.
Þú getur hafnað því að fá markaðsefni frá okkur hvenær sem er með því að hafa samband við þjónustuver á
http://contact.ascensia.com eða með því að smella á uppsagnartengilinn í einhverjum samskipta okkar.
Við höfum áfram samskipti við þig ótengt markaðssetningu þegar við þurfum að senda þér upplýsingar um Contour-
forritið, Contour Cloud-reikninginn þinn, framkvæma aðgerðir til úrbóta eða senda öryggistilkynningar. Við gætum
sent þér upplýsingar í gegnum tilkynningar, áminningar eða viðvaranir í Contour-forritinu til að upplýsa þig um nýja
þróun. Þú getur stjórnað upplýsingaboðum í stillingum fartækisins.
| Deiling persónuupplýsinga | 8
Deiling persónuupplýsinga
Við seljum hvorki né leigjum persónuupplýsingarnar þínar. Ascensia kann að deila upplýsingunum þínum með:
þriðju aðilum sem þú óskar eftir að við deilum upplýsingunum þínum með,
útibúi Ascensia á þínu svæði og Ascensia Diabetes Care US Inc. í tilgangi sem er í samræmi við þessa
persónuverndarstefnu. Upplýsingar um útibú Ascensia á þínu svæði er að finna á vefsvæði okkar,
http://diabetes.ascensia.com/en/ contact-us,
þjónustuveitendum sem taka þátt í þróun, ráðstöfun, úrræðaleit eða lagfæringum tengdum stuðningi við,
prófunum og viðhaldi á Contour-forritinu, Contour Cloud-þjónustu eða þjónustu sem boðið er upp á í Contour-
forritinu, sem vinna úr upplýsingum í samræmi við fyrirmæli okkar, persónuverndarstefnuna og aðrar viðeigandi
trúnaðar- og öryggisráðstafanir,
dreifingaraðilum okkar, ef þú býrð í landi þar sem við notumst við dreifingaraðila,
völdum samstarfsaðilum okkar ef þú hefur valið að taka þátt í könnunum, keppnum, viðhorfshópum eða öðrum
markaðstengdum aðgerðum í tengslum við notkun þína á vörum okkar og þjónustu. Þriðju aðilar nota
upplýsingar frá okkur, sem og upplýsingar sem þú veitir við skráningu, beiðni eða þátttöku, í því skyni að (i)
tilkynna þér ef þú hefur unnið til verðlauna í keppni eða happdrætti og (ii) verða að eða auðvelda að hægt sé að
verða að beiðni um vörur eða þjónustu í tengslum við skráningu, beiðni eða þátttöku. Þriðju aðilar eru
samningsbundnir til að gæta trúnaðar allra slíkra upplýsinga og er aðeins heimilt að nota þær í þeim tilgangi sem
þær voru veittar í, eða
mögulegum seljanda eða kaupanda við sölu eða kaup á rekstri eða eignum Ascensia svo kaupandi geti áfram
veitt þér upplýsingar og þjónustu.
Við deilum persónuupplýsingunum þínum hugsanlega með dreifingaraðilum, samstarfsaðilum eða
þjónustveitendum, þ.m.t í markaðslegum tilgangi eða ef þú hefur valið að deila persónuupplýsingum í gegnum
eiginleika og virkni sem boðið er upp á í Contour-forritinu. Við deilum eingöngu persónuupplýsingum með þriðju
aðilum í þeim tilgangi að veita, viðhalda, hýsa og styðja við Contour-forritið og Contour Cloud-reikninga.
Við birtum persónuupplýsingarnar þínar hugsanlega þegar þess er krafist til að bregðast við beiðnum frá opinberum
yfirvöldum eða samkvæmt lögum, þ.m.t. í þjóðaröryggisskyni. Sé þess krafist samkvæmt lögum kunnum við einnig
að birta persónuupplýsingarnar þínar ef það telst nauðsynlegt til að framfylgja eða beita notandaleyfissamningnum,
persónuverndarstefnunni eða öðrum samningum, til að rannsaka eða vernda réttindi, eignir eða öryggi Ascensia og
fyrirtækja innan samstæðunnar, vörur okkar og þjónustu, viðskiptavini, dreifingar- eða samstarfsaðila, eða til að
koma í veg fyrir eða grípa til aðgerða vegna ólöglegs athæfis eða svika, aðstæðna sem fela í sér mögulega ógn
gagnvart öryggi einstaklings eða sem gögn í málsókn. Persónuupplýsingarnar þínar kunna að falla undir erlend lög
og geta orðið aðgengilegar erlendum stjórnvöldum, dómstólum, löggæsluyfirvöldum og eftirlitsstofnunum.
Að nota Contour-forritið til að senda skýrslur
Contour-forritið getur gert þér kleift að útbúa blóðsykursskýrslu út frá upplýsingunum sem eru vistaðar á Contour
Cloud-reikningnum þínum. Þú getur notað Contour-forritið til að senda skýrslur með tölvupósti til utanaðkomandi
aðila, t.d. læknis, heilbrigðisstarfsmanns eða annars aðila að eigin vali. Ef þú kýst að deila persónuupplýsingunum
þínum skaltu gæta varúðar og ganga úr skugga um að þeim sé ekki deilt með fleirum.
Hafðu í huga að deiling persónuupplýsinganna þinna er alfarið á þína ábyrgð og Ascensia ber ekki ábyrgð á öryggi
eða vernd þeirra upplýsinga sem þú kýst að senda til annarra í gegnum Contour-forritið. Hafðu í huga að það er
áhætta fólgin í því að deila upplýsingum á internetinu, t.d. geta utanaðkomandi aðilar komist yfir þær í leyfisleysi.
Við mælum með að þú gætir ýtrustu varúðar þegar þú ákveður hverjum þú deilir persónuupplýsingum með.
| Mín mynstur | 9
Mín mynstur
Contour-forritið getur gert þér kleift að fá upplýsingar um ýmis blóðsykursmynstur og tölfræði sem hjálpar þér
hafa betri stjórn á sykursýkinni. Þessi mynstur tengjast háu og/eða lágu blóðsykursmagni í samræmi við tíma dags,
máltíðir eða vikudaga. Virknin „Mín mynstur“ greinir mynstur í blóðsykursmælingunum þínum og getur lagt til
breytingar til að bæta tíma eða tíðni mælinga.
Með þessari virkni er hægt að stilla áminningar um mælingar eða endurmælingar á blóðsykursmagni í Contour-
forritinu eða smella á tengla á gagnlegar upplýsingar svo þú getir haft betri stjórn á sykursýkinni.
Tengingar við forrit þriðju aðila
Contour-forritið getur gert þér kleift að tengjast snjallforritum þriðju aðila („Forrit þriðja aðila“). Ef þú kýst að
tengjast forriti þriðja aðila verður þú beðin(n) um samþykki fyrir deilingu persónuupplýsinga sem vistaðar eru á
Cloud-reikningnum þínum, sem kunna að vera heilsutengdar upplýsingar. Persónuupplýsingunum þínum verður
aðeins deilt með forriti þriðja aðila ef þú óskar eftir tengingu við það. Umfang þeirra persónuupplýsinga sem deilt er
með þriðja aðila er mismunandi eftir forritum þriðju aðila og vali þínu og geta m.a. verið gildi úr
blóðsykursmælingum, dagsetningar og tími mælinga, marksvið blóðsykurs eftir máltíðir, tegund máltíðar,
notandavirkni, lyfjagjöf og hvort mæling hafi verið gerð handvirkt eða með mæli.
Lista yfir forrit þriðju aðila sem þér býðst að tengjast sjálf(ur) er að finna í „Stillingar > Tengingar við forrit“. Virknin
„Tengingar við forrit“ sýnir forrit þriðju aðila sem þú hefur kosið að tengjast ásamt forritum þriðju aðila sem þú getur
valið að tengjast. Þú getur afturkallað samþykki þitt fyrir deilingu persónuupplýsinga með forriti þriðja aðila hvenær
sem er með því að smella á táknið fyrir tengt forrit þriðja aðila og velja að aftengjast.
Hafðu í huga að ef þú kýst að tengjast forriti þriðja aðila verður unnið úr persónuupplýsingum sem þú deilir í
samræmi við skilmála persónuverndarstefnu viðkomandi þriðja aðila.
Ascensia ber enga ábyrgð né skaðabótaskyldu vegna þessara reglna. Kynntu þér þessar reglur áður en þú tengist
forriti þriðja aðila.
Varðveisla og flutningur persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar á Contour Cloud-reikningnum þínum eru geymdar og unnið er úr þeim á netþjónum sem eru
staðsettir í svæðisbundinni aðstöðu okkar, sem kann að fela í sér að þjónustuveitandi okkar hýsi upplýsingar. Ef þú
býrð í landi þar sem lög um staðsetningu gagna gilda eru persónuupplýsingar þínar geymdar á netþjónum sem eru
staðsettir í þínu landi í umsjá skýjaþjónustuveitanda okkar sem er gagnavinnsluaðili fyrir hýsingu Contour Cloud-
reikninga. Við leitumst að öðru leyti við að geyma persónuupplýsingarnar þínar innan þíns svæðis. Það þýðir til
dæmis að gögn evrópskra notenda eru geymd í Frakklandi og gögn bandarískra notenda eru geymd í Bandaríkjunum.
Takmarkaðar ástæður eru fyrir því að gögnin þín eru flutt út fyrir svæðisbundna aðstöðu:
Þegar við útbúum tölfræðiupplýsingar úr gögnum notenda fyrir skýrslur með verkfærum samstarfsaðila, t.d. í
Bandaríkjunum. Ekki er hægt að bera kennsl á einstaklinga út frá þessum skýrslum.
Til að þróa Contour-forritið og veita þér aðstoð og tækniþjónustu fyrir Contour Cloud-reikninginn þinn.
Þar sem við erum með starfsemi um allan heim eru sumir samstarfsaðilar okkar staðsettir utan þíns lands (eða þess
lands sem við veitum þjónustu í), t.d. á Indlandi. Ef gagnaverndaryfirvöld telja land ekki hafa fullnægjandi vernd
fyrir persónuupplýsingar grípum við til viðeigandi öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar ef þær
eru fluttar. Í flestum tilvikum fela ráðstafanirnar í sér viðeigandi gagnaflutningssamninga við viðtakendur
upplýsinganna (svo sem föst samningsákvæði og sambærilega samninga í Bretlandi, Sviss, Kína og annars staðar).
| Öryggi persónuupplýsinga | 10
Öryggi persónuupplýsinga
Ascensia beitir viðeigandi efnislegum, tæknilegum og stjórnunarlegum aðferðum til að gæta trúnaðar, heilleika og
tiltækileika persónuupplýsinganna þinna. Við notumst við stranga verkferla og öryggisráðstafanir, þ.m.t. dulkóðun, og
grípum til allra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að tryggja að úrvinnsla persónuupplýsinganna þinna sé örugg og í
samræmi við þessa persónuverndarstefnu.
Þú berð ábyrgð á að verjast óheimilum aðgangi að Contour Diabetes-forritinu og Contour Cloud-reikningnum
þínum. Ascensia mælir með að þú notir öflugt aðgangsorð, t.d. blöndu bókstafa, talna og tákna, og notir ekki sama
aðgangsorð fyrir Contour Cloud-reikninginn og þú notar fyrir aðra reikninga sem þú kannt að eiga. Þú verður að
halda aðgangsorðinu að reikningnum þínum leyndu og ekki deila því með neinum. Ascensia ber ekki ábyrgð á
aðgangsorðum sem hafa tapast, verið stolið eða stofnað í hættu eða aðgangi óheimilaðra notenda að Contour Cloud-
reikningnum þínum ef hægt er að rekja orsökina til þín. Teljir þú að reikningi þínum hafi verið stofnað í hættu skaltu
hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er. Farðu á http://contact.ascensia.com til að fá samband við þjónustuver.
Vinsamlegast athugaðu að sending upplýsinga á internetinu er ekki fyllilega örugg. Þrátt fyrir að Ascensia geri sitt
besta til að vernda persónuupplýsingarnar þínar getum við ekki tryggt öryggi upplýsinga sem eru sendar í Contour-
forritið og allar slíkar sendingar er á þína ábyrgð.
Vafrakökur og svipuð tækni
Við kunnum að safna upplýsingum og nota rakningartækni fyrir ákveðna þjónustu og eiginleika í Contour Diabetes-
forritinu til að muna hluti um þig og veita þér þannig betri upplifun.
Hér að neðan má finna upplýsingar um tæknina sem við kunnum að nota við sjálfvirka söfnun upplýsinga, hvers
vegna við notum hana og valkostina sem standa þér til boða.
Notkun á vafrakökum
Vafrakökur eru lítil gagnasöfn sem eru geymd í vafranum eða tækinu þínu. Þær eru hugsaðar til að muna hvað
notandi hefur áður gert á tilteknu vefsvæði, sem getur verið að skrá sig inn eða smella á tengla.
Aðilinn sem starfrækir vefsvæðið sem þú heimsækir getur stillt vafrakökur („vafrakökur fyrsta aðila“) eða önnur
fyrirtæki („vafrakökur þriðja aðila“). Við notum eftirfarandi vafrakökur þar sem við á til að safna upplýsingum um
samskipti þín við ákveðna þjónustu, önnur vefsvæði og forrit:
Nauðsynlegar vafrakökur: Nauðsynlegar fyrir starfrækslu tiltekinna vefsvæða sem eru aðgengileg í
Contour Diabetes-forritinu. Þar á meðal eru til dæmis vafrakökur sem gera þér kleift að skrá þig inn á örugg svæði
vefforritsins, til að fletta á vefsvæðinu og nota eiginleika þess.
Greiningar- og afkastakökur: Gera Ascensia kleift að þekkja gesti, telja fjölda gesta og sjá hvernig gestir nota
ákveðin vefsvæði sem eru aðgengileg í gegnum Contour Diabetes-forritið. Þetta hjálpar okkur að bæta þessi
vefsvæði, til dæmis með því að tryggja að notendur eigi auðvelt með að finna það sem þeir leita að.
Virknikökur: Þessar vafrakökur þekkja þig þegar þú opnar vefforritið okkar aftur. Það gerir okkur kleift að
sérsníða efni fyrir þig.
Einhverjar virknikökur eru viðvarandi og eru hugsanlega notaðar ef þú skráir þig inn á bannsvæði til að muna hver þú
ert. Aðrar eru lotukökur sem eru hugsanlega notaðar fyrir nafnlausa auðkenningu við heimsókn á vefsvæði í
tæknilegum tilgangi eingöngu. Lotukökur eru aðeins geymdar tímabundið á meðan á lotu stendur og er eytt um leið
og vafranum er lokað.
| Gagnageymsla | 11
Svona notum við þessa tækni
Við notum vafrakökur og svipaða tækni í eftirfarandi skyni:
Til að skrá þig inn í þjónustuna sem við veitum, gera okkur kleift að birta reikningsgögnin þín, muna
stillingar þínar og eftirlæti, t.d. tungumála- og svæðisval, þegar þess er þörf og til að hjálpa okkur að sérsníða
upplifun þína og gæta að öryggi gagnanna þinna og þjónustunnar sem við veitum.
Til að safna nafnlausum tölfræðiupplýsingum um hvernig gestir nota þjónustuna okkar svo við getum bætt
nothæfi hennar og hvernig við miðlum efni.
Valkostir sem standa þér til boða
Þrátt fyrir að flestir vafrar séu settir upp þannig að þeir noti vafrakökur sjálfkrafa, er hægt að hafna vafra- og
tækjakökum með því að virkja viðeigandi stillingar á vafranum eða í tækinu. Hafðu í huga að ef þú velur að leyfa
ekki vafrakökur munu sumir eiginleikar þjónustu okkar mögulega ekki virka sem skyldi eða verða ekki tiltækir.
Viljir þú koma í veg fyrir að gögnin þín séu notuð af Google Analytics geturðu sett upp vafraviðbót Google til að
hafna því að gögnum sé safnað.
Þú getur notað sjálfseftirlitsáætlanir sem eru í boði á þínu svæði til að stjórna því hvernig fyrirtæki önnur en Google
birta þér auglýsingar, s.s. Val þitt á netinu innan ESB.
Ekki rekja
Ascensia safnar hvorki persónuupplýsingum um netvirkni þína yfir lengri tíma né á vefsvæðum eða í netþjónustu
þriðju aðila. Við leyfum þriðju aðilum heldur ekki að safna persónuupplýsingum um netvirkni þína yfir lengri tíma
eða á vefsvæðum eða í netþjónustu annarra þegar þú notar Contour Diabetes-forritið. Við bregðumst ekki við
skipunum frá vafranum þínum um að ekki megi rekja.
Gagnageymsla
Ascensia geymir persónuupplýsingarnar þínar á meðan þú ert með virkan Contour Cloud-reikning. Í kaflanum „Að
eyða Contour Cloud-reikningi“ hér að neðan er því lýst hvernig þú getur eytt Contour Cloud-reikningnum þínum og
hvað verður um persónuupplýsingarnar þínar þegar reikningnum hefur verið eytt.
Að eyða Contour Cloud-reikningi
Þú getur eytt Contour Cloud-reikningnum þínum með því að velja „Eyða reikningi“ í Contour-forritinu eða hafa
samband við okkur. Til að fá samband við þjónustuver skaltu fara á http://contact.ascensia.com Hafðu í huga að ef þú
eyðir reikningnum þínum munum við halda eftir uppsöfnuðum og ópersónugreinanlegum upplýsingum og þurfum
hugsanlega að halda eftir tilteknum persónuupplýsingum, eins og lög kveða á um. Við geymum gögn á Contour
Cloud-reikningnum þínum í tvö ár frá því að þeim var hlaðið upp til að gera þér kleift að sækja og flytja slík gögn út,
ef þess er þörf, í tengslum við vátryggingakröfu..
Þegar Contour Cloud-reikningnum þínum og öllum tengdum persónuupplýsingum hefur verið eytt taparðu aðgangi
að reikningnum þínum og getur hugsanlega ekki endurheimt hann aftur. Því er hugsanlegt að þú getir ekki
endurvirkjað Contour Cloud-reikninginn þinn eða endurheimt neinar persónuupplýsingar, þ.m.t. heilsutengdar
upplýsingar. Þú kannt því að vilja sækja og vista allar nauðsynlegar upplýsingar áður en þú eyðir reikningnum eða
óskar eftir því að við eyðum honum.
Ef þú eyðir reikningnum þínum og hefur áður valið að deila upplýsingum af Contour Cloud-reikningnum þínum með
þriðja aðila, t.d. heilbrigðisstarfsmanni eða öðrum einstaklingi, mun viðkomandi ekki geta nálgast upplýsingarnar
lengur, þ.m.t. upplýsingar um blóðsykursmælingar.
| Að nýta réttindi þín | 12
Ascensia áskilur sé rétt til að eyða Contour Cloud-reikningum sem hafa verið óvirkir lengi. Þegar Contour Cloud-
reikningur er óvirkur tilkynnum við þér það fyrirfram svo þú getir tryggt að reikningurinn verði áfram virkur og þú
getir haldið áfram að nota hann.
Að nýta réttindi þín
Þú getur uppfært upplýsingarnar þínar í Contour-forritinu ef þess er þörf. Ef þú getur ekki nálgast upplýsingarnar af
einhverjum ástæðum geturðu sent Ascensia skriflega beiðni með því að nota samskiptaupplýsingarnar hér að neðan
og tilkynnt okkur allar breytingar á (eða villur í) upplýsingunum þínum svo við getum uppfært þær fyrir þig.
Íbúar á evrópska efnahagssvæðinu (EES) eða Sviss: Þú gætir átt rétt á því að: (a) fá aðgang að persónuupplýsingum
sem við geymum um þig, (b) óska eftir því að við leiðréttum rangar persónuupplýsingar sem við geymum um þig, (c)
óska eftir því að við eyðum persónuupplýsingum sem við geymum um þig, (d) takmarka úrvinnslu persónuupplýsinga
sem við geymum um þig, (e) mótmæla úrvinnslu persónuupplýsinga sem við geymum um þig og/eða (f) fá afhentar
persónuupplýsingar sem þú hefur veitt okkur á grundvelli samþykkis þíns, á skipulegu sniði sem er læsilegt algengum
tölvubúnaði, eða fá þær sendar til annars fyrirtækis.
Íbúar Alþýðulýðveldisins Kína, Taívan, Hong Kong, Indónesíu, Suður-Kóreu, Malasíu og Argentínu: Þú gætir átt rétt á
því að: (a) fá aðgang að persónuupplýsingum sem við geymum um þig, (b) óska eftir því að við leiðréttum rangar
persónuupplýsingar sem við geymum um þig, (c) óska eftir því að við eyðum persónuupplýsingum sem við geymum
um þig og/eða (d) takmarka úrvinnslu persónuupplýsinga sem við geymum um þig.
Við gætum beðið um viðbótarupplýsingar til að staðfesta hver þú ert og af öryggisástæðum, áður en við afhendum þær
upplýsingar sem þú hefur beðið um.
Ef þú hefur verið beðin(n) um samþykki fyrir úrvinnslu persónuupplýsinga veitum við þér tækifæri til að afturkalla
samþykki þitt. Þú getur til dæmis afturkallað samþykki með því að hafa samband við okkur með
samskiptaupplýsingunum hér að neðan. Þú færð upplýsingar um hvernig þú afturkallar samþykki þitt í hverju tilfelli
fyrir sig. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti úrvinnslunnar á grundvelli samþykkis þíns fram að
afturkölluninni. Hafðu einnig í huga að þegar þú afturkallar samþykki hættum við eingöngu að vinna úr þeim
persónuupplýsingum sem tengjast samþykkinu sem þú afturkallaðir.
Ef þú vilt nýta réttindi þín í tengslum við persónuupplýsingar skaltu hafa samband við Ascensia með því að senda
tölvupóst á dp_office@phchd.com eða bréfpóst á Ascensia Diabetes Care Holdings AG, Peter Merian-Strasse 90,
4052 Basel, Sviss. Við vinnum úr öllum beiðnum í samræmi við staðbundin lög sem og stefnur okkar og
verklagsreglur. Ef þú ert innan EES hefurðu rétt á því að leggja fram kvörtun til eftirlitsstofnunar í þínu landi vegna
úrvinnslu okkar á persónuupplýsingunum þínum.
| Börn | 13
Persónuverndarréttindi Kaliforníuríkis:
Persónuverndarupplýsingar okkar fyrir Kaliforníuríki útskýra hvernig við söfnum, notum og birtum
persónuupplýsingar íbúa Kaliforníu sem falla undir persónuverndarlög fyrir neytendur í Kaliforníu, með áorðnum
breytingum samkvæmt persónuverndarréttindum Kaliforníuríkis („California Privacy Rights Act“). Þessi
upplýsingagjöf gildir einnig um íbúa í öðrum ríkjum Bandaríkjanna með svipuð persónuverndarlög, eftir því sem við
á.
Ef þú býrð í Kaliforníu, eða tilteknum öðrum ríkjum Bandaríkjanna, með ákveðnum lagalegum undantekningum og
takmörkunum, getur þú nýtt þér eftirfarandi rétt þinn í gegnum vefeyðublað okkar sem finna má á vefsvæði okkar eða
með því að hringja í (800) 348-8100. Ef þú vilt vita hvort réttindin eigi við þig skaltu hafa samband við:
dp_office@phchd.com. Ef þú sendir inn beiðni í gegnum vefeyðublaðið skaltu tilgreina hvaða réttindi þú vilt nýta þér
í hlutanum „Skilaboð“.
Þú gætir þurft að staðfesta hver þú ert þegar þú hefur samband við okkur til að óska eftir því að við afhendum eða
eyðum persónuupplýsingum. Við verðum að staðfesta hver þú ert til að tryggja að þú sért eigandi
persónuupplýsinganna sem við höfum safnað eða aðili sem hefur heimild til að leggja fram beiðni fyrir hönd
eigandans. Ef þú ert beðin(n) um að staðfesta hver þú ert gætum við beðið þig um sönnun sem passar við upplýsingar
sem Ascensia hefur, t.d. nafn, netfang, póstfang, símanúmer og/eða kreditkortaupplýsingar, ef við höfum þær
upplýsingar.
Þú getur beðið viðurkenndan fulltrúa um að nýta réttindi þín fyrir þína hönd. Þú verður að veita viðurkenndum
fulltrúa skriflegt leyfi til að nýta réttindi þín fyrir þína hönd og við verðum að geta staðfest hver þú ert líkt og lýst er
hér að ofan. Ef þú ert viðurkenndur fulltrúi skaltu hafa samband við okkur í (800) 348-8100.
Réttur til að vita. Þú hefur rétt á að biðja um upplýsingar um flokka og tilteknar persónuupplýsingar sem við höfum
safnað um þig, uppruna persónuupplýsinga, í hvaða tilgangi persónuupplýsingum var safnað, flokka þriðju aðila sem
við höfum deilt persónuupplýsingum með og í hvaða tilgangi þeim var deilt. Þú getur flutt út upplýsingar úr
Contour-forritinu í gegnum forritið líkt og lýst er í kaflanum „Mín umsjá“. Ef þú óskar eftir viðbótarupplýsingum
skaltu hafa samband við okkur líkt og lýst er hér að ofan.
Réttur til að eyða. Þú hefur rétt á að biðja okkur um að eyða persónuupplýsingunum þínum.
Afþakka sölu. Við seljum ekki persónuupplýsingarnar þínar til þriðju aðila.
Þegar þú nýtir réttindi þín munum við ekki mismuna þér á neinn hátt sem skarast á við gildandi lög.
Foreldrar/forráðamenn: Ef þú ert foreldri eða forráðamaður barns sem notar þjónustu okkar skaltu lesa kaflann „Börn“
hér að neðan til að skilja og nýta þér réttindi þín.
Börn
Við söfnum hvorki né notum persónuupplýsingar einstaklinga sem við vitum að eru undir lögaldri án þess að staðfest
samþykki foreldris/forráðamanns barnsins liggi fyrir. Við beitum viðeigandi tæknilegum öryggisráðstöfunum til að
koma í veg fyrir að börn skrái sig sem notanda að Contour-forritinu þar sem persónuupplýsingum kann að vera
safnað. Við söfnum eingöngu upplýsingum frá börnum sem eru nauðsynlegar til að nota Contour-forritið og stofna og
nota Contour Cloud-reikning. Þegar fæðingardagur notanda við nýskráningu gefur til kynna að viðkomandi sé undir
lögaldri biðjum við um netfang foreldris/forráðamanns. Foreldri/forráðamaður fær tölvupóst þar sem óskað er eftir að
viðkomandi fari á vefsíðu til að samþykkja stofnun Contour Cloud-reiknings og smelli til að samþykkja þessa
persónuverndarstefnu. Aðeins er hægt að stofna Contour Cloud-reikning eftir að foreldri/forráðamaður hefur gert
þetta. Sé þess óskað hefur foreldri/forráðamaður rétt á að sjá upplýsingar sem barn hefur veitt og/eða krefjast þess að
þeim verði eytt. Ef þú ert foreldri/forráðamaður og hefur áhyggjur af persónuupplýsingum barns í Contour-forritinu
skaltu hafa samband við Ascensia með því að senda tölvupóst á privacy@ascensia.com eða bréfpóst á Ascensia
Diabetes Care Holdings AG, Peter Merian-Strasse 90, 4052 Basel, Sviss.
Ef þú ert búsett(ur) í Bandaríkjunum og hefur spurningar um Ascensia og lög um friðhelgi einkalífs barna á netinu
(Children’s Online Privacy Protection Act), geturðu einnig haft beint samband við dótturfyrirtæki okkar: Ascensia
Diabetes Care US Inc., 5 Wood Hollow Rd, Parsippany, NJ 07054, Bandaríkjunum eða í síma +1 (862) 225-2902.
Hafðu í huga að ef þú hefur samband við dótturfyrirtæki okkar í Bandaríkjunum skráum við þau samskipti
sérstaklega.
| Breytingar á persónuverndarstefnunni | 14
Breytingar á persónuverndarstefnunni
Allar breytingar á þessari persónuverndarstefnu í framtíðinni verða birtar á þessari síðu og, eftir okkar geðþótta,
sendar þér með tölvupósti eða með tilkynningu í Contour-forritinu
Hafa samband
Spurningar, athugasemdir og beiðnir er varða þessa persónuverndarstefnu eru vel þegnar og skulu þær berast til
gagnaverndarfulltrúa á dp_office@phchd.com eða á Ascensia Diabetes Care Holdings AG, Peter Merian-Strasse 90,
4052 Basel, Sviss. Ef þú hefur samband við okkur gerum við okkar allra besta til að bregðast við þeim áhyggjum sem
þú kannt að hafa vegna úrvinnslu okkar á persónuupplýsingunum þínum.