Persónuverndarstefna
Þetta farforrit (þetta „app“) er þróað og starfrækt af Bayer HealthCare LLC („Bayer“, „við“, „okkur“ eða „okkar“).
Bayer er meðvitað um að friðhelgi þín og öryggi persónuupplýsinga þinna er mikilvægt og því tökum við vernd persónuupplýsinga þinna mjög alvarlega. Þessi stefna leggur grunninn að úrvinnslu á öllum persónuupplýsingum sem þú lætur okkur í té eða við öflum frá þér og hún upplýsir þig um öryggisráðstafanir okkar („persónuverndarstefna“).
Þessi persónuverndarstefna og okkar
Með því að sækja og skrá þig til notkunar á þessu appi ert þú að samþykkja úrvinnslu Bayer á persónuupplýsingum þínum eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu. Þar á meðal er úrvinnsla á heilsutengdum upplýsingum þínum í tengslum við umönnun á sykursýki þinni í gegnum þetta app. Vinsamlegast ekki sækja eða nota þetta app ef þú vilt ekki að við vinnum úr persónulegum eða heilsutengdum upplýsingum þínum í gegnum þetta app.
Fyrirtækjasala Ascensia: Vinsamlegast athugaðu að Bayer hefur nýlega selt rekstur á Diabetes Care til Panasonic Healthcare, með stuðningi KKR, og þess er vænst að salan gangi í gegn á fyrri hluta ársins 2016. Panasonic mun annast reksturinn undir nýju nafni, Ascensia Diabetes Care.
Eftir fyrirtækjasöluna verða allar upplýsingar sem Bayer hefur um þig, þar á meðal allar heilsutengdar upplýsingar, fluttar til Ascensia. Ascensia mun áfram vinna með upplýsingar þínar í tilgangi sem er í samræmi við þessa persónuverndarstefnu og Ascensia mun gefa út sína eigin stefnu stuttu eftir að gengið hefur verið frá sölunni. Viljir þú fá frekari upplýsingar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á: bayerascensiainfo@bayer.com
Öflun persónuupplýsinga
Við gætum aflað og unnið með eftirfarandi upplýsingar um þig:
- Þú afhendir okkur mögulega upplýsingar um þig þegar þú sækir, skráir þig í eða notar appið. Þú gætir einnig veitt okkur persónuupplýsingar með því að fylla út eyðublöð eða senda tölvupóst sem eru hluti af pöntun á vörum eða þjónustu, þar sem þú ert með fyrirspurnir eða beiðnir eða þegar þú tilkynnir um vandamál varðandi appið og við svipaðar aðstæður þar sem þú velur að veita okkur upplýsingar. Á meðal upplýsinga sem þú afhendir okkur gætu verið: nafn þitt, kyn, netfang, fæðingardagur, land, sannvottunarupplýsingar og aðrar skráningarupplýsingar, þar á meðal það aðgangsorð sem þú velur fyrir notandareikning.
- Bayer mun einnig vinna með upplýsingar sem aflað er í gegnum appið eða sem ílag í það og tengjast stjórn á sykursýki þinni, heilsufarsástandi og blóðsykursmæli. Þar á meðal gætu verið upplýsingar um gerð sykursýki þinnar, lyfjagjöf, insúlín, fæðuinntaka og reglubundin hreyfing, heimilisfang sjúkrahúss/sjúkrahúsa og tímar hjá lækni, skýrslur frá heilbrigðisstarfsmönnum, blóðsykursmælingar, A1c gögn og tegundarnúmer, raðnúmer og stillingar mælis.
- Tæknilegar upplýsingar, þar á meðal um gerð þess fartækis sem þú notar, einkvæmt auðkenni (til dæmis IMEI-tala tækisins, MAC-fang fyrir þráðlaust netviðmót tækisins eða farsímanúmerið sem tækið notar), upplýsingar um farsímakerfi, stýrikerfi þitt og númer hugbúnaðarútgáfu, IP-tala, gerð vefvafrans sem þú notar, lands- og tungumálakóði og tímabeltisstillingar.
- Við munum einnig afla upplýsinga um notkun þína á appinu, eins og allar mælisvillur, skráningarfærslur og stjórnunargögn Bayer svo við getum tryggt snurðulausa starfsemi appsins.
Það er ekki skilyrði að þú veitir persónuupplýsingar fyrir notkun appsins, nema að því leyti sem er nauðsynlegt til að sækja og/eða nota appið.
Notkun á persónuupplýsingum
Við notum persónuupplýsingar á eftirfarandi hátt:
- til að láta þér í té appið og að tilkynna þér um allar breytingar,
- til að veita þér og halda áfram að þróa og bæta appið, sem og að tryggja að innihald þess sé sett fram á sem skilvirkastan máta,
- til að sinna innri aðgerðum okkar eins og bilanaleit, gagnagreiningu, prófunum, rannsóknum og í tölfræðilegum og könnunartengdum tilgangi,
- til að gera þér kleift að taka þátt í gagnvirkum eiginleikum appsins, þegar þú kýst að gera það,
- sem hluti af viðleitni okkar í að halda appinu öruggu og tryggu,
- til að mæla og skilja áhrifamátt auglýsinga sem við mögulega birtum þér og öðrum, og til að birta þér viðeigandi auglýsingar, og
- til að gera tillögur og gefa ráðleggingar um vörur eða þjónustu sem gætu vakið áhuga þinn.
Bayer HealthCare gæti einnig stofnað, haft aðgang að, varðveitt, notað og birt utanaðkomandi rannsóknaraðilum uppsöfnuð, nafnlaus eða auðkennislaus gögn sem fengin eru úr þjónustu appsins í rannsóknarskyni til að meta hvernig appið og skýjaþjónusta þess er veitt og notuð, til að meta afköst eða áhrif á notendur (þar á meðal lýðfræðibreytur notenda, eins og landfræðileg staðsetningu), til að meta afköst og viðmót við blóðsykursmæla, til að efla virkni og eiginleika appsins og/eða skýjaþjónustunnar, til að fullgilda uppfærslur appsins eða vegna vöruþróunar.
Markaðssetning
Við notum einnig mögulega upplýsingar þínar til að veita þér eða leyfa þriðju aðilum að veita þér, markaðsefni:
- fyrir vörur og þjónustu sem þú biður um frá Bayer eða við teljum að þú hafir áhuga á, eða
- fyrir aðrar vörur og þjónustu sem við bjóðum og eru svipaðar þeim sem þú hefur þegar keypt eða spurt um.
Ef þú ert núverandi viðskiptavinur munum við aðeins hafa samband við þig með tölvupósti eða SMS með upplýsingar um svipaðar vörur og þjónustu. Ef þú ert nýr viðskiptavinur og þar sem við leyfum völdum utanaðkomandi aðilum að nota upplýsingar þínar, munum við (þeir) hafa samband við þig með tölvupósti eða SMS, eingöngu ef þú hefur veitt samþykki fyrir því
Viljir þú ekki fá markaðsskilaboð færðu tækifæri til að segja þig frá þeim í öllum samskiptum sem þú tekur á móti. Að öðrum kosti getur þú sagt þig frá þeim hvenær sem er með því að hafa samband við okkur hér: [Setjið inn samskiptaupplýsingar]
Birting persónuupplýsinga
Bayer mun aðeins birta öðrum persónuupplýsingar:
- sem eru innan fyrirtækjahóps Bayer,
- með þínu samþykki,
- í tengslum við starfrækslu appsins, markaðsátök Bayer eða til að bregðast við beiðni frá þér,
- til að bregðast við öllum lagalegum eða stjórnsýslulegum skyldum eða beiðnum,
- við sölu eða kaup á einhverjum rekstri Bayer eða eignum, en þá gætu persónuupplýsingar verið birtar tilvonandi seljanda eða kaupanda,
- til að framfylgja eða beita notkunarskilyrðum eða öðrum samningum eða til að rannsaka möguleg samningsbrot, eða
- til að vernda réttindi, eignir eða öryggi Bayer, viðskiptavina þess eða annarra.
Við gætum einnig sent þér upplýsingar í gegnum tilkynningar í appið, áminningar eða viðvaranir til að upplýsa þig um nýja þróun sem við teljum að þú eigir að vita um. Þú getur stjórnað sjálfvirkum tilkynningum í stillingum fartækis þíns.
Að deila gögnum með heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum
Appið býður þér mögulega að flytja skrár úr appinu í reikning í skýinu, óskir þú eftir því. Ef þú kýst að deila persónuupplýsingum þínum með heilbrigðisstarfsmanni eða öðrum, vinsamlegast sýndu gætni og gakktu úr skugga um að persónuupplýsingum þínum sé aðeins deilt með tilætluðum einstaklingum. Vinsamlegast athugaðu að öll deiling á persónuupplýsingum þínum er alfarið þín eigin áhætta og Bayer ber ekki ábyrgð á vernd þeirra upplýsinga sem þú kýst að senda til annarra í gegnum appið, né á aðgerðum viðtakenda slíkra upplýsinga.
Þegar þú kýst að deila einhverjum af þínum gögnum í appinu eða geyma þau í skýjaþjónustu með þriðja aðila, þar á meðal heilbrigðisstarfsmanni, lækni eða annarri heilbrigðisþjónustu, ber Bayer ekki ábyrgð á því hvernig sá þriðji aðili notar gögnin, þar á meðal þegar einhver þriðji aðili leitast eftir að nota gögnin þín til rannsókna, þar á meðal í klínískum rannsóknum. Þegar þú kýst að deila gögnum þínum er það alfarið þín áhætta. Við mælum með að þú sýnir ýtrustu gætni þegar þú ákveður að deila gögnum þínum með þriðju aðilum.
Geymsla á persónuupplýsingum
Persónuupplýsingar má flytja, geyma og vinna með á stað utan Evrópska efnahagssvæðisins („EES“) á skýjatölvunarbúnaði þegar netþjónarnir eru staðsettir í Bandaríkjunum eða Asíu. Einnig má starfsfólk vinna með gögnin sem vinnur utan EES og starfar fyrir Bayer eða einn af utanaðkomandi þjónustuaðilum okkar og annast starfrækslu appsins. Með því að senda persónuupplýsingar til Bayer eða sækja og nota appið, fellst þú á þennan flutning, geymslu eða úrvinnslu á persónuupplýsingum þínum.
Bayer innleiðir viðeigandi stjórnunarlegar, tæknilegar og raunlægar öryggisráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að vernda trúnað, heilleika og tiltækileika á þeim persónuupplýsingum þínum sem Bayer vinnur með í tengslum við appið. Við munum grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að úrvinnsla á persónuupplýsingum þínum sé örugg og í samræmi við þessa persónuverndarstefnu.
Því miður er sending upplýsinga á internetinu ekki fyllilega örugg. Þrátt fyrir að Bayer geri sitt besta til að vernda persónuupplýsingar þínar, getum við ekki ábyrgst öryggi þeirra upplýsinga sem sendar eru í appið og allar sendingar eru á þína eigin áhættu. Þegar við höfum móttekið upplýsingar þínar munum við notast við stranga verkferla og öryggiseiginleika til að reyna að koma í veg fyrir óheimilan aðgang.
Þín aðgangsréttindi
Þar sem lög leyfa getur þú beðið um aðgang að persónuupplýsingum sem við höfum um þig með því að hafa samband við Bayer hér [Setjið inn samskiptaupplýsingar]. Við munum vinna með þá beiðni samkvæmt öllum staðbundnum lögum og stefnum og verkferlum okkar sem gilda um slíkar beiðnir.
Réttur til friðhelgi einkalífs í Kaliforníu
Lög í Kaliforníu heimila þeim sem hafa búsetu í Kaliforníu að biðja um og fá frá okkur einu sinni á ári, gjaldfrjálst, upplýsingar um þær persónuupplýsingar (ef einhverjar) sem við höfum afhent þriðju aðilum fyrir beina markaðssetningu á undangengnu almanaksári. Ef við á munu þessar upplýsingar innihalda lista yfir flokka þeirra persónuupplýsinga sem var deilt, ásamt nöfnum og heimilisföngum allra þriðju aðila sem við höfum deilt upplýsingum með á undangengnu almanaksári. Eins og stendur deilum við ekki persónuupplýsingum með þriðju aðilum fyrir þeirra eigin beinu markaðssetningu þannig að þessi krafa á ekki við um okkur.
Ennfremur eru rekstraraðilar vefsvæða skyldugir, samkvæmt lögum í Kaliforníu, til að birta hvernig þeir bregðast við „Ekki vakta“ merkjum frá vefvöfrum eða öðrum álíka ferlum sem gera neytendum kleift að eiga val varðandi öflun á persónugreinanlegum upplýsingum yfir tíma og á milli vefsvæða og appa frá þriðju aðilum, að því marki sem rekstraraðilinn stendur í slíkri öflun. Eins og stendur vöktum við ekki persónuupplýsingar yfir tíma og á milli vefsvæða og appa frá þriðju aðilum. Þessi lög krefjast þess einnig að rekstraraðilar vefsvæða og appa birti hvenær þriðju aðilar megi safna persónuupplýsingum um hegðun notenda þeirra á netinu yfir tíma og á milli mismunandi vefsvæða og appa þegar notendur nota vefsvæði eða app rekstraraðilans. Við leyfum þriðju aðilum ekki vitandi vits að safna persónuupplýsingum um hegðun þína á netinu yfir tíma og á milli mismunandi vefsvæða eða appa þegar þú notar þetta app.
Notkun á vafrakökum og álíka tækni
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem hægt er að setja í tækið þitt og greina einmuna vafra þinn eða tæki. Við notum vafrakökur og álíka tækni eins og myndeindir, vefvita og staðbundna geymslu til að afla upplýsinga um hvernig þú notar appið og til að veita þér virkni þess. Vafrakökur og álíka tækni gera okkur einnig kleift að besta og einfalda notkun appsins.
Með því að sækja og nota appið ert þú að fallast á notkun Bayer á vafrakökum. Við notumst við eftirfarandi vafrakökur:
Skráning á greiningargögnum
Appið safnar litlum upplýsingaeindum úr tæki þínu til að vakta upplýsingar, eins og gögn um það hvernig þú notar appið og upplýsingar um vandamál sem gætu komið upp.
Greiningargögn er mögulega send í skýið og gera okkur kleift að besta og einfalda notkun appsins.
Þú getur lokað fyrir vafrakökur með því að virkja þá stillingu á vefvafra þínum sem gerir þér kleift að hafna öllum eða sumum vafrakökum. Ef þú hins vegar lætur vafrastillingar þínar loka fyrir allar vafrakökur (þar á meðal mikilvægar vafrakökur) getur þú mögulega ekki notað appið eða hluta þess.
Börn
Í ljósi þess hversu mikilvægt það er að vernda friðhelgi einkalífs barna öflum við ekki né vinnum með neinar upplýsingar sem tengjast einstaklingi sem við vitum að er undir 13 ára aldri án fyrirliggjandi, sannanlegs samþykkis löglegs fulltrúa eða forráðamanns barnsins. Slíkur löglegur fulltrúi eða forráðamaður hefur rétt, samkvæmt beiðni, á að sjá upplýsingarnar sem barnið hefur veitt og/eða til að krefjast að þeim verði eytt. Ef þú ert löglegur fulltrúi eða forráðamaður og hefur einhverjar áhyggjur er varða persónuupplýsingar barnsins í tengslum við appið, vinsamlegast hafðu samband við Bayer hér [Setjið inn samskiptaupplýsingar].
Breytingar á þessari persónuverndarstefnu
Allar breytingar á þessari persónuverndarstefnu í framtíðinni verða birtar á þessari síðu og, þar sem við á, tilkynntar þér með tölvupósti. Vinsamlegast athugaðu reglulega hvort í boði séu einhverjar uppfærslur eða breytingar á persónuverndarstefnu okkar.
Samskipti
Við fögnum öllum spurningum, athugasemdum og beiðnum er lúta að þessari persónuverndarstefnu og þær skulu stílaðar á:
[Setjið inn samskiptaupplýsingar]
